Guðmundarlundur

 

Guðmundarlundur

er afar vistlegt útivistarsvæði sem Kópavogsbúar eru óðum að kynnast og njóta og nýtur orðið mikilla vinsælda. Skógræktarfélag Kópavogs á og rekur lundinn.
Guðmundarlundur er öllum opinn.

Í honum eru 4 útigrill, þar af 2 í grillhúsi með borðum og bekkjum, eitt grill er við húsið (gamla bústaðinn, farið til vinstri þegar komið er inn fyrir hliðið) og fjórða grillið er á nýrri flöt sem gengið er beint inná af planinu, vinstra megin við stóru hliðin.

Í lundinum er töluvert skógarsvæði með skemmtilegum stígum og lundum. Einnig er stór grasflöt, sem nota má til leikja eða samkomuhalds. Gönguleiðakort

Sumarið 2008 bættist við í Guðmundarlund myndarlegur garður með fjölbreyttum fjölærum garðagróðri úr garði Hermanns heitins Lundholm. Garðurinn ber nafnið Hermannsgarður. Sumarið 2009 voru gerð nokkur beð milli Hermannsgarðs og grillhúss með hátt í hundrað runnaplöntum af um 70 tegundum.
Búið er að malbika aðalstíginn um Guðmundarlund og setja lýsingu með honum. Innst í Guðmundarlun
di er verið að byggja  félags- og þjónustuhús sem jafnframt er fræðslusetur sem verður nýtt fyrir Skógræktarfélagið og grunnskólana og leikskólana í Kópavogi, svo og fyrir gesti Guðmundarlundar.

Skógræktarfélagið fékk Guðmundarlund frá Guðmundi Jónssyni og fjölskyldu. Sjá hér.

Umgengnisreglur í Guðmundarlundi


< Grillað í grillhúsinu

Skógræktarfélag Kópavogs sér um umhirðu, viðhald, sorphirðu og leigu á WC (sem er á svæðinu 1.maí - 30.október)

Félagið hefur mjög takmarkaðar tekjur og á ekki aðra kosti en fá kostnaðinn greiddan frá notendum svæðisins.

Til að hafa á móti útlögðum rekstrarkostnaði höfum við sett upp gjald fyrir afnot hópa af aðstöðunni.
Fyrir minnstu hópana 20-30 manns kr 5.000.
Fyrir hópa 30-80 manns 15.000.
Ef stærri hópar eru á svæðinu leyfum við afnot af bústaðnum vegna salernisaðstöðu þar. Þá greiða menn kr 25.000.-

Til þess að taka frá Guðmundarlund þarf að hafa samband við:
- Braga Michaels
son s. 898 2766 bragimich hjá simnet.is
  Bragi er starfsmaður í Guðmundarlundi og formaður félagsins

Greiða þarf fyrirfram á reikning 1135-26-6010
   og senda kvittun í tölvupóst á  bragimich hjá simnet.is. 
Kennitala Skógræktarfélags Kópavogs er 601072-0179. 

< Svæðið við gamla sumarbústaðinn

Guðmundarlundur

Guðmundarlundur

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hermannsgarður í Guðmundarlundi

Eldri myndir