|
Fræðsla |
||
| Meðferð
jólatrjáa: Jólatré stendur best ef það er geymt á köldum og rökum stað fram að jólum (jafnvel að standa í vatni). Við uppsetningu er rétt að saga þunna sneið (5 – 10 cm) neðan af trénu og láta það standa samfellt í vatni yfir hátíðarnar. Mikilvægt er að það þorni aldrei! Íslensk jólatré eru barrheldnari en innflutt vegna þess að þau eru höggvin miklu síðar en þau innfluttu og ef þau þorna aldrei byrja þau að vaxa um þrettándann. |
||
|
|
||